Lambi Loðnefur

Sunday, March 25, 2007

Þá hefur Lambi loksins fréttir að færa.

Sigurður Tómas Guðmundsson er íslandsmeistari í mjólkurlist 2007. Lambi átti stóran þátt í góðu gengi Sigurðar og hefur gengið svo langt að halda því fram að allt sem Sigurður gerði RÉTT í keppninni hafi verið honum að þakka. Nú hlakkar Lambi mikið til að komast til Belgíu á heimsmeistarakeppnina. Sigurður er hinsvegar örlítið kvíðinn því hann neyðist til að greiða flugfar Lamba eins og um hafði verið samið.

Ég ætla líka að óska öldruðum foreldrum mínum til hamingju með perlubrúðkaupsafmæli sitt, þau eru 30 ára í dag!

6 Comments:

At 12:10 PM, Blogger Tinna vinkona þín said...

var siggi að vinna alvöru keppni? hvaða? ég nota bene 30 ára skírnarafmæli eftir tvo daga. það verður móttaka milli 17.-19. á ránargötu. snittur. gjafir í dýrari kantinum.

 
At 12:30 PM, Blogger Flóki said...

Til hamingju! Hvenær er heimsmeistaramótið? :-)

 
At 1:29 PM, Blogger Tinna vinkona þín said...

tilhamingju herra siggi-au-lait! hvað kostar þú á tímann? ertu tilbúinn að starfa á kaffihúsinu mínu með slaufur í hárinu og klæðast þar blúndusvuntu? sem fröken 10 dropar?

 
At 4:14 PM, Anonymous Anonymous said...

Haha...fröken tíu dropar með skeggrót? Það þykir mér viðeigandi. Heimsmeistaramótið er 18-20 maí þannig að Siggi rétt nær heim til að koma með til Danmerkur. Skírnargjafmælisgjöf? Ég minnist þess ekki að hafa fengið neina fermingargjöf frá þér....er skírn ekki eins bjánaleg athöfn? Varst þú ekki líka afskírð þegar þú sagðir þig úr þjóðkirkjunni?

 
At 6:34 AM, Blogger Tinna vinkona þín said...

jú, þær skvettu á mig óhelgu klósettvatni niðrá hagstofu þegar ég sagði mig úr þjóðkirkjunni fyrir 15 árum.

 
At 6:53 AM, Anonymous Anonymous said...

Það hlaut að vera eitthvað.

 

Post a Comment

<< Home