Lambi Loðnefur

Thursday, December 06, 2007

Keðjubréf?

Ætli lífið hans lamba hafi verið svona mikið drasl vegna allra hótunar-keðjubréfa sem honum hafa borist í gegnum tíðina og ekki sinnt eða er einhver önnur ástæða fyrir misförum þessa ljúfa lambs?

10 Comments:

At 1:00 PM, Blogger Gudrun Iris said...

Elsku lambi minn, ég var að heyra að þér hefði borist vinningur, ferð fyrir tvo til Boston. Er þetta kannski enn ein hörmungin í lífi litla lambsins?

 
At 2:04 AM, Blogger Tinna vinkona þín said...

sko, þér hefur tekist að útvega þér lyklaborð fyrir klaufdýr. og já, sjáðu bara mig, ég hendi alltaf svona hótunarkeðjubréfum og líf mitt hefur verið ömurlegt frá því að ég nettengdist fyrst.

 
At 2:45 AM, Blogger Unknown said...

En þið eruð báðar á lífi þrátt fyrir allt. Lambi skoðaðu það sem er gott í þínu lífi. Þú átt heimili og hefur nóg grasað bíta í og svo áttu lítinn hrút, sem knúsar þig og svo áttu mig. Lambi þetta er allt mjög gott ekki satt. Ekki opna ljótu keðjubréfin.

 
At 2:46 AM, Blogger Unknown said...

Ég er ekki pabbi- éger ég mamma, en skrifa þett á pabba tölvu. mamma

 
At 2:48 AM, Blogger Unknown said...

Ég er ekki pabbi- ég er ég mamma, en skrifa þetta á pabba tölvu. mamma

 
At 5:58 AM, Anonymous Anonymous said...

Já, þetta var mjög ólíkt Lamba-pabba.
Ég þurfti að safna mér lengi fyrir þessu sérsmíðaða lyklaborði og sé fram á að geta ekki gefið neinar jólagjafir eftir að hafa keypt það, vona að þið skiljið. Í staðinn mun mín jólagjöf til ykkar allra og heimsins vera löng og góð bloggfærsla.

 
At 12:54 AM, Blogger Tinna vinkona þín said...

kemur hún kl. 8 á aðfangadag?

 
At 2:56 AM, Blogger Gudrun Iris said...

Lambi minn, við hlökkum til að fá jólabloggið okkar- það verður eins og jólaglögg gott fyrir sálina.

 
At 11:05 AM, Blogger Unknown said...

Hvað var ólíkt Lamba-pabba? Hann er alltaf jákvæður og uppörvandi og hefur lengi verið tilnefndur til bjartsýnisverðlaunanna. Varðandi keðjubréfin er til einföld lausn: fara heim til þess síðasta á listanum með öxi og segja honum að ef hann drepi ekki þann næsta á undan verði hann drepinn. Þetta ætti að drepa flestar venjulegar keðjur. Lambi á að vera hress og sprækur. Hann á Sigurð gullplötu sem vinnur hörðum höndum við eiginhandaráritanir og býr á eftirsóttum stað í borginni.

 
At 6:06 PM, Blogger Gudrun Iris said...

Hvar er netfærslujólagjöfin?

 

Post a Comment

<< Home