Lambi Loðnefur

Thursday, March 29, 2007

heilsusamlegt?

tómatsósan sem ég kaupi er 70% sykur 80% litarefni og 40% rotvarnarefni. Og ekki halda að ég hafi ekki áttað mig á þessum prósentutölum. Þetta er ógnvekjandi!
Annað sem er ógnvekjandi er að meira að segja svona gáfað og yfirvegað fólk eins og ég getur átt 'stupid moments'. Ég var að skoða myndir á netinu áðan (augljóslega af fimm ára gömlum átröskunarsjúklingum) og skyndilega fannst mér eins og ég væri gamall flóðhestur í samanburði. Þá hringdi ég í Sigga og bað hann um að koma með aðrar buxur fyrir mig sem gætu kannski haldið einhverju af þessu inni. Hann kom með buxur, AF SJÁLFUM SÉR, fimm númerum stærri en allar mínar buxur! Þá varð ég enn leiðari.

6 Comments:

At 7:44 AM, Blogger Flóki said...

Leið þér þá ekki strax betur þegar þér varð ljóst að Siggi er eins og gamall flóðhestur í samanburði við þig?

En síðan er spurningin: Hvers vegna varstu að skoða myndir af fimm ára gömlum anórexíusjúklingum? Er það heilsusamlegt? ;-)

 
At 7:49 AM, Blogger Mira said...

Ég ætlaði einmitt að segja það sama og Flóki. :p

 
At 7:49 AM, Blogger Sulli said...

Nei það er svo sannarlega ekki heilsusamlegt, ekki frekar en að borða tómatsósu með þessari innihaldslýsingu.
Mér datt í hug að siggi gæti verið flóðhestur í samanburði við mig, en hann er nú samt næstum 20 sentimetrum stærri en ég og með mun meiri vöðva (sem sagt stæltari flóðhestur),.

 
At 12:46 PM, Blogger Tinna vinkona þín said...

fyrirgefðu að ég skuli alltaf vera að segja að þú sért feit, án þess að taka það fram hvað mér finnst það fara þér vel

þín tággranna, smávaxna, fíngerða, petit og brothætta systir

 
At 3:19 PM, Blogger Gudrun Iris said...

Ég myndi skipta um tómatsósutegund. Þá geturðu átt von á að lifa fram yfir fertugt.

 
At 3:54 PM, Anonymous Anonymous said...

Mamma: Ég veit að tómatsósan mín er ógeðsleg en hún er bara svo ódýr.
Tinna: Takk....

 

Post a Comment

<< Home