Hausinn á Lamba...
...er ekki eins góður í laginu og hann var einusinni. Hann hefur, bara í dag, fengið á sig tvær kúlur. Þannig er að Lambi var rak höfuðið upp undir skáp í vinnu sinni í dag og fékk að eigin sögn heilahristing. Hann vankaðist og var óglaður ásamt því að hljóta af heilmikinn höfuðverk. Síðar sama dag var Lambi á gangi með Sigurði sem var að segja eitthvað mjög kjánalegt og Lambi leit til hliðar, gekk á skilti og Sigurður hló. Nú er Lambi með tvær kúlur og afskaplega ósáttur.


5 Comments:
Lambi er greinilega ekki sá heppnasti. Kannski mál til komið að fara að ganga með hjálm?
P.S.
Ég er heldur ekki svo heppinn. Meðan ég var að skrifa þetta tókst mér að hnerra hálftuggnu brauði (með osti) yfir allt stofugólfið.
Hjálmur já og svo þyrfti Lambi að fá sér almennilega tryggingu. Þetta með brauðið eru eflaust áhrif frá Lamba.
en hvað er siggeit með margar kúlur á sálinni eftir að hafa hlegið?
Hæ kúlulambi. Þú hefur greinilega 9 líf eins og kötturinn og ert bara búin með tvö.. Lambeigandi nr. eitt.
Siggi er með kúlu í enninu eftir að hafa helgið að lamba. Hann fékk litla illmenniskúlu.
Post a Comment
<< Home