Lambi Loðnefur

Thursday, March 29, 2007

Gah!

Lambi stakk skítugu skrúfjárni sem hann var að nota á skítug gleraugu á bólakaf í puttann sinn. Ái ái ái. Nú á Lambi eftir að deyja úr blóðeitrun eftir nokkra daga. Aumingja Lambi, ef honum blæðir ekki út fyrst. (og já! lambi var lengi að skrifa þessa færslu sökum fötlunar).

5 Comments:

At 9:49 AM, Blogger Flóki said...

Reyndu að lifa af lambi! Þú hefur örugglega ekki fengið neina blóðeitrun -- nema þá samstarfsmenn þínir hafi notað þetta skrúfjárn til að skeina sér? (Maður getur aldrei verið viss.)

Mundu að blóðeitranir eru frekar sjaldgæfar. Ekki hafa áhyggjur :-)

 
At 12:50 PM, Blogger Tinna vinkona þín said...

þær sjást, ekki hafa áhyggjur enda ertu þaulvön blóðeitrunum, ert líklega búin að mynda mótefni. það sem ég myndi gera í þínum sporum er að vaka í alla nótt og stara á puttann til að sjá hvort það fer ekki örugglega að myndast dökk lína. ég veit að það tekur marga daga að drepast úr blóðeitrun en samt væri athyglisvert að ná þessari þar sem hún tekur sín fyrstu skref. endilega taktu þetta upp á myndband.

 
At 3:16 PM, Blogger Gudrun Iris said...

Elsku lambi, gaman að sjá að þú ert aftur komin á stjá.

 
At 4:00 PM, Anonymous Anonymous said...

Tinna: Þær sjást vissulega en eru samt mis-hraðskreiðar. Hún gæti verið komin upp á öxl þegar ég vakna á morgun og þá þarf að taka handlegginn af. Það þætti mér ekki gaman.
Flóki: já blóðeitranir eru sjaldgæfar, það eru einmitt þannig sjúkdómar sem leggjast á mig undarlegir og sjaldgæfir.

 
At 4:43 PM, Blogger Gudrun Iris said...

Það er rétt lambi minn. Hvernig er heilinn núna eftir síðasta áfall?

 

Post a Comment

<< Home