Hausinn á Lamba...
...er ekki eins góður í laginu og hann var einusinni. Hann hefur, bara í dag, fengið á sig tvær kúlur. Þannig er að Lambi var rak höfuðið upp undir skáp í vinnu sinni í dag og fékk að eigin sögn heilahristing. Hann vankaðist og var óglaður ásamt því að hljóta af heilmikinn höfuðverk. Síðar sama dag var Lambi á gangi með Sigurði sem var að segja eitthvað mjög kjánalegt og Lambi leit til hliðar, gekk á skilti og Sigurður hló. Nú er Lambi með tvær kúlur og afskaplega ósáttur.

