Bara Putin?
Ekki segja mér að það sé bara Pútín sem hefur áhyggjur af því að samkynhneigð sé lýðfræðilegt vandamál?

Ekki segja mér að það sé bara Pútín sem hefur áhyggjur af því að samkynhneigð sé lýðfræðilegt vandamál?
Lambi er lasinn. Hann er með bólgu á stærð við tennisbolta í hálsinum, hausverk, hor og voða mikinn hita. Og þetta allt saman rétt áður en hann fer í flug. Lambi verður ábyggilega, eins og alltaf, veikur í útlöndum.
Lambi heyrði ansi skemmtilega útgáfu af Gamla Nóa í dag. Þrír litlir kallar komu inn og kváðust ætla að flytja frumsamið lag. Í ljós kom að lagið var gamalt en textinn frumsaminn og Lamba þótti hann nokkuð góður. Ég ætla að skrifa niður textann fyrir ykkur og mælist til þess að hann sé sunginn með lítilli ljósri röddu sem gæti tilheyrt átta ára barni.
Lambi situr á kaffihúsi með Lambínu. Skyndilega stekkur Lambína á fætur og segist ætla að ná í kaffi niður. Lambína er lengi. Lambi bíður. Svo birtist Lambína, og dregur fram rós. Þá bregður Lamba og strákarnir á næsta borði fara að hlæja. Lambi var búinn að afskrifa alla rómantík á konudaginn því hann veit hversu gleymin Lambína er. En Lambi fékk sem sagt rós.
Já, ég átti í erfiðleikum með að skrá mig inn hér. Minnist þess ekki að hafa þurft að haka við neitt samþykkisdrasl í hvert skipti sem ég skráði mig inn áður en nú þurfti þess greinilega! Og verandi eins vitlaus og Lambi er, hélt hann að sjálfsögðu að einhver hefði stolið leyniorðinu hans og breytt því svo Lambi kæmist ekki inn og gæti ekki bloggað (svona er að vera með rammpólitískt blogg)....því Lambi hefur enn ekki fengið öryggislykil sendan heim fyrir bloggið.
Ég gerði það meðvitað að hafa síðustu bloggfærslu mjög stutta svo ættingjar mínir með athyglisbrest gætu líka komist í gegnum hana, það hefur ekki virkað! Mig er farið að gruna að aðeins einn ættingi hafi lesið hana og látið síðan afkvæmi sitt skrifa undir fyrir sig....