Lambi Loðnefur

Tuesday, January 30, 2007

"LAMBI" - EINS OG STJÖRNURNAR

Lambi hefur, eftir afkastamikla sundferð, komist í hóp með ekki ómerkari konum en Lindsey Lohan og Brittney Spears. Eins og mikið hefur verið skrifað um í morgunblaðinu að undanförnu (því jú víst kann Lambi að lesa blöðin eins og hinir bloggandi ættingjar hans) eru þessar tvær einstaklega dugleagar að sýna á sér líkamsparta sem óæðra fólk hylur öllu að jöfnu. Lambi er víst ekki svo heppinn að vera frægur og má því ekki búast við því að neinar myndir úr ferðinni birtist í blöðum heimsins. En í þessari merku sundferð (þar sem Lambi að sjálfsögðu var í brók en missti niður annan hlírann) tókst honum að flassa 3 unglingsstúlkur. Nú, hefði þetta gerst innan marka kynjabundinna búningsklefa hefði Lambi ekki vakið nærri eins mikla lukku! Og það vissi hann! Því beið Lambi með að láta hlírann renna fram af þartil einhverjar litlar sálir sem mundu veita þessu mikla athygli voru nærstaddar. OG VITI MENN! Þessar litu sálir (sem álpuðust í sund um leið og illmennið hann Lambi) munu líkast til aldrei bíða þess bætur að hafa rekið augun í brjóst í niða myrkri og kolröngu umhverfi.

Wednesday, January 24, 2007

DYRU AFMÆLISGJAFIR LAMBA

Eins og allir aðdáendur Lamba vita átti Lambi afmæli um daginn. Lambi náði þeim merka áfanga að verða 24 ára þann 20. janúar síðastliðinn. Lambi mun nú vegna þrýstings frá eldri systur sinni (sem er, fyrst Lambi er nú á annað borð að tala um aldur og afmæli, þrítug) segja frá þeim fjölmörgu og góðu gjöfum sem hann fékk.

Frá eigendum sínum fékk Lambi:

1 pk. Lambi snýtupappír
gullleggings
kjól
kalt vax


Frá ömmu:

síðermabol
rúllukragamagabol
1 par ullarinniskór


Frá Helgu:

1 seðil að andvirði 5000 kr


Frá Tinnu og Eiríki:
2 sérvaldar bækur (lambi þorir ekki annað en segja "besta gjöfin")


Frá afkvæmi systur:
-mynd af afkvæmi


Frá foreldrum Sigurdurgs:
-borðofn með helluborði


Frá Sigurdurgi sjálfum:
1 st stækkara
3 st bakka
10 st ljósmyndapappír
1 st filma
2 st spólur
1 st spólubox
1 st þrífót
1 st rauð pera
2 st tangir
4 brúsar vökvar
1 st hitamælir
1 st trekt
2 st mæliglös


Útistandandi eru gjafir frá bróður lamba og ástkonu hans

Thursday, January 18, 2007

HETTU-LAMBI

Lambi hefur alltaf verið umtalaður vegna geislandi fegurðar sinnar. Sé talað um fegurð verður mönnum ætíð hugsað til Lamba og þeirrar fegurðar sem hann býr yfir, jafnt að innan sem utan. Því brá mörgum í brún, Lamba sjálfum sérstaklega, þegar Lambi vaknaði ljótur einn daginn. Lambi greip um höfuð sér og fann fyrir ljótleikanum undir lófanum. Lambi fór að hrína en við það breiddi lótleikinn aðeins úr sér lítið eitt. Lambi vaknaði svo á hverjum degi í tvær vikur við það að ljótleikinn hafði tekið undir sig enn stærri part af Lamba. Kollurinn á Lamba var bólginn og bjagaður af ljótleika. Lambi varð svo ljótur að honum var bannað, af læknum, að fara út úr húsi. Ekki vegna þess að Lamba gæti sakað sjálfan, heldur hefði hann aukið slysahættu í nánasta umhverfi sínu. Menn sem sáu Lamba á þessum tíma hlupu annað hvort öskrandi burt eða störðu og bentu. En þessi óhamingja Lamba átti sér orsök, það er nefnilega þannig að hinir ýmsu sjúkdómar geta gert jafnvel fallegasta fólk herfilega ljótt! Og Lambi var með hettustótt. Lambi varð ljótur bæði að innan sem utan (og er það oftast tilfellið því biturðin heltekur þá ljótu). Hann hafðist við í helli sínum og bjó til ljótar jólagjafir handa fallegum ættingjum sínum. Nú hugsið þið eflaust, lesendur góðir, "þetta er óhugsandi! ég mun aldrei trúa þessu uppá Lamba." En þó minnið sé brigðult er myndin það ekki og því birtir Lambi hér sönnunargögn sín. Þetta verk mun Lambi kalla: "Um tíma var Lambi ljótur".
Photobucket - Video and Image Hosting
Photobucket - Video and Image Hosting
Photobucket - Video and Image Hosting

Tuesday, January 16, 2007

HUGMYNDASNAUÐUR LAMBI

Já nú er ég loksins kominn með internetið. Ég fékk það reyndar fyrir nokkru (tæpri viku) en var þá blessunarlega búinn að gleyma þessu bloggi. Ætlar Lambi ekki að fara að blogga? - spurðu menn sig og loks Lamba. Lambi velti vöngum, hann vissi vel að hann var vondur bloggari. Hann hugsaði með sér, "ég er hugmyndasnauður, latur og ekki síst spéhræddur þegar bloggið er annars vegar, hversvegna blogga? Verður mönnum illa við mig ef ég hætti? Verður mönnum illa við mig ef ég held áfram kannski?" Lambi varð þá þunglyndur, hann faldi sig í nokkra daga og vildi engan sjá. Tilvistarkreppa tilkomin af bloggtregðu sveif yfir lamba. Svo gleymdi hann blogginu aftur (glöggir lesendur hafa nú áreiðanlega veitt því athygli að Lambi er afar gleyminn, bravó!). Í dag hinsvegar mundi ég allt í einu eftir því að ég átti þetta blogg, rifjaði upp aðgangsorðið og settist niður við að skrifa. Góðir ættingjar ég hef eytt klukkustundum í þessa færslu og bið þess að þið verjið í það minnsta jafnlöngum tíma í að velja fyrir mig afmælisgjöf. Lambi hefur veitt því athygli að hann á afmæli afar sjaldan, of sjaldan. Hann hefur velt því fyrir sér og komist að þeirri niðurstöðu að ættingjar hafi nógan tíma til þess að velja fallegar gjafir handa honum afmæla á milli. Þeir geti eytt dögum, vikum eða jafnvel mánuðum í valið. Eftir þessa uppgötvun sína er Lambi nú sannfærður um að allar gjafir verði góðar eða í það minnsta skilanlegar (og þá dýrar). Lambi vill nú taka það fram að hann er hvorki gráðugur né heimtufrekur og hafi einhver misskilið mál Lamba er sá hinn sami beðinn um að afmisskilja það hér með!

Lambi hefur enn og aftur haft niðurgang, eins og einhver indæll ættingi orðaði það hér fyrir nokkru, og er mikið í mun að ljúka máli sínu svo hann komist í bólið.

Wednesday, January 03, 2007

Óprúttnir ættingjar

Ef færslurnar hans Lamba eru ekki nógu góðar fyrir ykkur fáið þið einfaldlega ekki fleiri. Lambi ætlar að koma sér upp öðru bloggi og finna sér nýja lesendur!