Lambi Loðnefur

Wednesday, December 20, 2006

LAMBI BLOGGAR SEM ÓÐUR VÆRI

Ég hef tekið eftir því að kommentin verða fleiri eftir því sem lengra líður milli færslna. Þykir ykkur þetta jákvæð skilyrðing? Þið, góðu og vel metnu lesendur, virðist hafa unnið meira að bloggi lamba hingað til en lambi sjálfur. Lambi mun nú taka til við að bæta úr því. Hann hefur heyrt að "bílskúrinn" verði líkast til ekki netlaus fram yfir jól og þá ætti lambi að geta bloggað vel yfir morgunverðinum alla daga.

Annars er það af lamba að frétta að hann lenti í ansi óprúttinni konu áðan. Lambi sat við vinnu sína (því jú, víst vinnur lambi af hörku þó hann sé bæði með bronkitís og blóð í kviðarholinu (af óskiljanlegum ástæðum, já það var læknir sem reyndi að útskýra þetta fyrir lamba)). Þá kemur inn þessi óprúttni kvenmaður og ætlast til þess að lambi láni símann. Verandi hjartahlýr og vel innrættur eins og (þið vitið að) lambi er leyfir hann kvenmanninum að hringja en tekur það þó fram að símtalið megi ekki standa of lengi. Konan hringir, segir nokkur orð og biður svo lamba um að fara á bakvið svo hún geti talað í næði. Lamba hitnar í framan, ekki bjóst hann við þessu! Lambi veit ekki hvernig hann á að bregðast við en segir þó að hann fari ekki fet því að sjálfsögðu getur lambi ekki skilið fólk (sérstaklega undarlegt fólk sem biður um að fá að vera eitt) eftir eitt í búðinni. Lambi bætir því síðan við, og það kemur frá hjartanu, að hann hafi engan áhuga á símtali konunnar svo henni sé frjálst að tala því lambi sé ekki að hlusta. Svo líður og bíður og ekki greinir lambi nein merki þess að konan sé á því að leggja á. Lambi er á þessum tímapunkti orðin óþolinmóður og til þess að sanna það fyrir sjálfum að hann hafi fullan rétt á að gera hvað sem honum sýnist í búðinni, leggur hann loks við hlustir. Lambi heyrir væl og vein. Almáttugur minn! -Hugsar lambi. Þetta á þá engan enda að taka. Lambi reynir með látbragði að flæma konuna úr símanum, hann ræskir sig, trommar með fingrunum og þá....allt í einu...er lambi beðinn enn á ný um að fara burt! Þessi ósvífna kona hefur misskilið greiðvirkni lamba. Hún heldur nú að lambi sé undirlægja og láti bjóða sér hvað sem er!? Lambi ítrekar áhugaleysi sitt fyrir símtalinu og bætir því við að konan sé nú búin að vera einum of lengi. Konan reynir áfram að bola lamba burt "ég þarf að lesa upp reikningsnúmer og ég vil ekki að þú heyrir". Lambi hlær innra með sér. Hvað á hann að gera við reikningsnúmer, laumast til þess að leggja inn á annara manna reikning? (þó lambi hafi átt við það vandamál að stríða fyrr á tímum að leggja inn á reinknga í gríð og erg þá hann komst yfir reikningsnúmer er annað upp á teninginn núna, lambi fór í meðferð og er búinn að læra að peningar hans gagnast honum ekkert þegar þeir eru komnir inn á reikninga annara.) Reikningsnúmer væri lamba vita gagnslaust þó hann heyrði það og það segir hann konunni. Loks gefst þá konan upp á að reka lamba burt. Lambi er þá farinn að hnykkla brýrnar og setja sig í stellingar. Konan er farin að pirra hann. En konan fer. Eða svo heldur lambi sem hrekkur í kút þegar konan segist, á leiðinni út, ætla að koma við aftur með pening fyrir símtalinu og bíða hjá lamba eftir því að verða sótt. Lambi vill öskra! Lambi vill fá að vera í friði í búðinni, hann segist ekki vilja sjá neina borgun og hálfpartinn ýtir konunni á undan sér út.
Eftir þetta sest lambi niður við að blogga. lambi er hálfnaður með sögu sína af óbermis konunni þegar inn kemur önnur undarleg manneskja. Í þetta sinn maður. Maðurinn staldrar ekki lengi við og fær því ekki eins á lamba. Maðurinn sýnir lamba áður en hann fer sólgleraugun sín (útötuð í súkkulaðinu sem maðurinn er að borða). Svo fer maðurinn en lofar þó fyrst (og nei lambi gekk ekki á hann) að líta aftur við hjá lamba. Hann skilur súkkulaðið eftir.

Nú er lambi einn

Thursday, December 07, 2006

frændi þinn?

Börn nú til dags eru farin að minna æ meir á hið alræmda dvergakyn sem illmögulegt hefur reynst að útrýma með góðu móti. Er mögulegt að dvergarnir séu farnir að dulbúast sem börn eða hafa þeir aðeins haft áhrif á börnin? Að minnsta kosti þykir mér tími til kominn að fara úr hörðu í aðeins harðara!

Það stóð skratti við glugga andspænis mér, þar sem ég beið eftir því að Sigurður og bíllinn birtust. Biðin varð vandræðaleg um leið og þetta meðalstóra barn vippaði upp, á ljóshraða (snöggar hreyfingar eru einmitt aðalsmerki dverga), myndavél sem það leit út fyrir að vilja skjóta mig með (dvergar eru mjög illskeyttir) og fór að stilla fókus. Ég, sem kann því illa að bíða og enn verr að vera mynduð í laumi (einkum af dvergum), snéri mér eldsnöggt við og mjakaði mér meðfram vegg þartil ég komst fyrir horn og úr augsýn þessa kvikindis. Þar sem ég stóð rjóð og undrandi bakvið Optik, fannst mér hugmynd mín um lágmarkshæð á borgarbúa ekki alslæm og liggur við bara töfrandi. Ég gekk hugsi burt frá frænda dvergsins þessari vörtu samfélagsins sem þrjóskast við að halda úti njósnastarfsemi á kostnað frelsis hins almenna borgara.

Sunday, December 03, 2006

Sigurður tók líka prófið hann á eftir, eins og Tinna, að deyja án þess að nokkur verði þess var. Ætli ég verði ekki of upptekin við að vera reið til þess að taka eftir því að hann sé dauður (kannski verð ég þegar orðin evil robot).
Your Deadly Sins
Sloth: 80%
Gluttony: 60%
Lust: 60%
Envy: 40%
Greed: 40%
Wrath: 40%
Pride: 20%
Chance You'll Go to Hell: 49%
You will die while sleeping - and no one will notice.

Friday, December 01, 2006

Loðnefjaðir enda yfirleitt í helvíti

Your Deadly Sins
Wrath: 100%
Pride: 80%
Envy: 60%
Sloth: 60%
Greed: 40%
Lust: 20%
Gluttony: 0%
Chance You'll Go to Hell: 51%
You will die, but first you will turn into an evil robot.